Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

20. fundur 31.07.08

Stjórnarfundur LH 31. júlí 2008.

20. fundur kl 15:00.


Stjórn og var boðuð til þessa fundar. Sigurður Ævarsson, Sigfús Helgason, Haraldur Þórarinsson og Einar Ragnarsson. Sigrún Ögmundsdóttir sat fundinn.


Dagskrá:

  1. Fundagerð síðasta fundar, símafundar samþykkt.

    1. Kostnaðaráætlun sem LH kynnti fyrir ráðherra var samþykkt.

    2. Frágengið.

    3. Fasteigna og lóðagjöld hesthúsa í hinum ýmsu sveitafélögum , fram kemur að þau eru mjög mismunandi.

    4. Ekki verið framhald af málinu.

    5. Er í kyrrstöðu.

    6. Var byggt á misskiling og nauðsynleg að klára þetta mál fyrir þing.

  2. Halldór Halldórsson mætir á fundinn vegna skráningu reiðleiða og sýnir hvernig útlit síðan mun fá. Útlitið er aðlaðandi og auðvelt að nýta sér síðuna til gagns. Halldór hvetur LH til þess að afla sér frekari tekna til áframhaldandi skráningar og kynna vel fyrir þeim sem hugsanlega gætu nýtt sér síðuna og þá gegn vægu gjaldi til þess að stoppa ekki þróunina. Samþykkt var að halda síðunni opinni fram að áramótum og standa fyrir öflugri kynningu á þinginu. Haraldur Þórainsson og Halldór Halldórsson fylgja málinu áfram og leggja á ráðin. Halldóri þökkuð kynningin.

  3. 56. landsþing LH. Sigrún Ögmundsdóttir fer yfir stöðuna og skýrir frá stöðu mála hjá LH. Stjórnin hefur áhyggjur af að þingin séu að verða og stór og þung í vöfum. Samþykkt var að semja tillögu sem sefnir að því að fækka fulltrúum þannig að þingið verði viðráðanlegra í framkvæmd. Farið yfir afdrif þingskjala síðasta þings og virðist að flest málefni hafi fengið eðlilegan framgang. Maríanna mætir á fund. Samþykkt að Sigrún Ögmunds haldi áfram undirbúningi og sjái um skipulag þingsins.

  4. Önnur mál.

    1. Sigurður Ævarsson mætir sem fulltrúi LH á samráðsfund Norðurlanda á Norðurlandamóti.

    2. Landsmót: Sent verði bréf til allra formanna með ósk um álit á Landsmóti. Haraldur semur uppkast sem farið verður yfir á næsta stjórnarfundi.

    3. Starfsmannamál LH: Bjarni Sn hefur tekið að sér að leiða starfið sem byrjar 8.águst nk.

    4. Haraldur Þórainsson fer á þýska meistaramótið í tilefni af 50.ára afmæli þýska sambandsins.


Fundi slitið.


Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Lyfjareglur
2m6d0594.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf