Flýtilyklar
1 fundur stjórnar 2008-2010 7.nóvember 2008
07. nóvember 2008
1 fundur nýrra stjórnar.
Haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Aðalstjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar.
Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Ísleifur Jónsson og Sigfús Helgason,
Sigrún Þórðardóttir og Sigrún Valdimarsdóttir aðrir boðuðu forföll.
1 Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Fundargerð síðasta fundar samþykkt með
leiðréttingum.
2 Stjórn skiptir með sér verkum
Oddur Hafsteinsson var kjörinn ritari og ákveðið var að
Maríanna tæki að sér að vera gjaldkeri áfram.
3. Kostnaður stjórnarfunda
Umræður urðu um ferðakostnað vegna stjórnarfunda, ekki eru til skýrar reglur um hvernig haga skuli greiðslum
vegna ferðakostnaðar. Skipuð var nefnd til þess að koma með tillögur um ferðakostnað fyrir næsta stjórnarfund. Í nefndinni eru
Maríanna Gunnarsdóttir ábm. Sigfús Helgason og Sigrún Valdimarsdóttir.
4. Landsþing 2008
Farið var yfir samþykkta tillögur, tillögur sem vísað var til milliþinganefnda og þeim sem var
vísað til stjórnar. Eftirfarandi þingtillögum var komið í farveg. Frekari umræðum um tillögur var frestað.
a) Þingtillaga 11 a. Móta þarf tillögu hið sem fyrst svo hægt verði að senda hana áfram
til FEIF fyrir 4 desember 2008.
b) Þingtillaga 16. Breytingar voru samþykktar um staðarval mótsstað landsmót, Hefja þarf vinnu sem
fyrst. Ákveðið að Haraldur semji auglýsingu í samvinnu við skrifstofu og leggi fyrir stjórn í gegnum tölvupóst eða næsta
stjórnarfund.
5. Starfsnefndir LH 2008 - 2010
Lagður var fram listi yfir starfsnefndir LH. Starfslýsingar nefnda má finna á heimasíðu LH undir
nefndir. Ákveðið var að rýna í starfslýsingar og farið verður yfir þær á næsta stjórnarfundi. Stjórnarmenn fari
yfir starfsnefndir og starfslýsingar nefnda og komi með tillögur fyrir næsta stjórnarfund.
6. Mótaröð LH
Nefnd sem hefur unnið að undirbúningi fyrir mótaröð LH mun leggja fram drög að skýrslu á
næsta stjórnarfund.
7. Hvað stendur LH fyrir / Stefnumótunarvinna
Ákveðið var að halda áfram með stefnumótunarvinnu í samvinnu við
Capacent ráðgjöf. Vilhjálmur Skúlason mun taka saman spurningarlista sem sendur verður á aðildarfélög til þess að draga fram
væntingar aðildarfélag til starfssemi LH.
8. Íþróttamaður / kona LH
Skipuð var nefnd til þess að koma með tillögur að vali karl- og kvenknapa fyrir næsta
stjórnarfund. Í nefndina voru skipuð Sigurður Ævarsson ábm, Sigfús Helgason og Sigrún Valdimarsdóttir.
9. Önnur mál
a) Bréf frá hestamanafélaginu Létti um boð á 80.ára
afmælishátíð þeirra, var boðið þakkað og ákveðið var að Haraldur Þórarinsson myndi fara.
b) Bréf frá hestamannafélaginu Funa, bréfið verður lagt inn í umræðu um stefnumótun LH og
Landsmóts.
c) Bréf frá Lyfjanefnd ÍSÍ. Í bréfinu kom fram boð á kynningarfund um Lyfjaeftirlitsmál.
Á fundinum verður kynntar nýjar reglur um lyfjaeftirlit. Oddur Hafsteinsson mun mæta fyrir hönd LH. Í framhaldinu var nokkur umræða um
lyfjaeftirlit innan vébanda LH. Ákveðið var að óska eftir niðurstöðum lyfjaprófanna frá síðasta ári.
Niðurstöður verða lagðar fram á næsta stjórnarfundi.
d) Heimasíðumál LH, ræddar voru tillögur um heimasíðumál LH. Vinnan hefur verið í höndum Jens
Einarssonar og Odds Hafsteinssonar. Ákveðið var að fresta málinu til næsta stjórnarfundar.
e) Starfsmannamál. Ákveðið var að hefja samningarviðræður við Jónu Fanney um stöðu
framkvæmdarstjóra LH, ef þær viðræður bera árangur verður tekin ákvörðun í samvinnu við nýjan
framkvæmdarstjóra um starfsmannamál.
f) Bréf til hestamannafélaginu Gust. Ákveðið var að óska efir því aðstyrkur sem Gustur hefur
veitt LH til útgáfustarfssemi verði varið til gerðar nýrrar heimasíðu LH og þar með styrkt útgáfustarfssemi LH.
g) Starfsgildi í hestamennsku. Ákveðið var að skoða hversu mörgu stöðugildi á íslandi væru
við hestamennsku. Slíkt verkefni hefir verið unnið af Sigurlaugu Gísladóttir og getur haft markaðslegt gildi fyrir hestamennskuna í dag.
h) Hross í hollri vist. Lögð var fram skýrsla fyrir stjórn LH sem unnið hefur verið af
Landbúnaðarháskóla Íslands, LH fagnar slíkri vinnu sem ýtir undir þekkingu hestamanna um aðbúnað hrossa og hönnun
hesthúsa. Ræddar voru hugmyndir að fleiri rannsóknarverkefnum sem LH gætu komið af stað í samvinnu við háskóla á
Íslandi sem gætu orðið hestamennskunni til framdráttar.
i) Árgjald kynbótahrossa. Umræður urðu um ákvörðunFagráðs um gjald á
kynbótahross.
Jens Iversen formaður FEIF hefur óskað eftir fundi með LH vegna FEIF. Haraldur mun sjá um fundarboð og boða þá sem nauðsynlegt er
að hafa á fundinum.
Næsti fundur stjórnar ákveðinn 28.nóvember 2008.
Fleira ekki fært til bókar
Fundarritari: Oddur Hafsteinsson
Styrktaraðilar
RSS fréttir
- andvari.is
1. Vetrarleikar 2012 - svadafelagar.123.is
Skagfirska mótaröðin 2012 - svadafelagar.123.is
Yfirlýsing frá LH - andvari.is
Úrslit á ræktunardegi Hrossaræktarfélags Andvara 04.02.2012. - andvari.is
Heimsókn á Syðri-Gegnishóla - andvari.is
Fasteignagjöld - svadafelagar.123.is
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun - andvari.is
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun - sleipnir.is
1. Opna Vetramót Sleipnis. - hordur.is
Úrslit í Smalamóti Harðar 2012














