Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

19. fundur 16.05.08

Stjórnarfundur LH 16. maí 2008

19. fundur


Stjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mætt voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigfús Helgason, Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Maríanna Gunnarsdóttir, Þorvarður Helgason, Sigrún Valdmimarsdóttir og Hinrik Már Jónsson, einnig sat fundinn Sigrún Ögmundsdóttir


  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar

Fundargerð síðasta fundar samþykkt.


  1. TREC keppni í Frakklandi

Haraldur kynnti verkefnið. LH lagði fram kostnaðaráætlun fyrir Tómas Inga Olrich og landbúnaðarráðuneytið og plan yfir það sem LH gæti aðstoðað með.

 

  1. Undirbúningur fyrir HM 2009

Sigrún Ögm kynnti ferð til Sviss þar sem keppnissvæði HM 2009 var skoðað og hótel fyrir bæði knapa og gesti. Bjarnleifur Bjarnleifsson, Sigurður Sæmundsson og Sigrún Ögmundsdóttir fóru á vegum LH og Sigurður Gunnarsson frá Úrval Útsýn.

Silke Winter aðstoðar framkvæmdastjóri mótsins hjálpaði dyggilega við undirbúning ferðarinnar og á staðnum, benti á möguleg hótel og fylgdi gestum allan laugardaginn. Einstaklega hjálpsöm og vel skipulagt af hennar hendi. Roger Scherrer framkvæmdastjóri mótsins hitti gesti á HM svæðinu og sýndi allt er viðkom mótinu. Sjá minnisblað um ferðina.


  1. Fasteignagjöld á hesthús, svar frá umboðsmanni Alþingis og menntamálaráðuneyti

Í svari frá umboðsmanni kemur fram að ekki séu skilyrði fyrir því að hann fjalli um kvörtun LH. Hann bendir á að réttast sé að vísa málinu til úrskurðar Fasteignamats ríkisins og yfirfasteignamatsnefndar.

Í svari frá menntamálaráðuneyti kemur fram að málefni sveitarfélaga hafi verið flutt frá félagsmálaráðuneyti til samgöngumálaráðuneytis og hafi þeir framsent erindið þangað til frekari umfjöllunar og meðferðar.

Fundað hefur verið með Sambandi íslenskra sveitarfélaga um málið og styðja þeir okkur í því. Unnið verður áfram í þessu í gegn um löggjafann og ráðherra sveitarstjórnarmála.


  1. Styrkumsókn frá hestamannafélaginu Sindra

Sindri hefur óskað eftir styrk til æskulýðsstarfs félagsins. Senda afrit af bréfinu til æskulýðsnefndar LH og óska eftirstarfsreglum um styrkveitingar sem þessar frá nefndinni.


  1. Erindi frá FT

LH barst bréf frá FT þar sem þeir óska eftir samstarfi við LH um að skrá íslensk menntaða tamningamenn, þjálfara og reiðkennara inn í Matrixu FEIF. FT er einnig reiðubúið til frekari viðræðna um menntamál í hestamennsku almennt.

Samþykkt að Herdís Reynisdóttir, Sigrún Ólafsdóttir og Sigrún Ögm vinni drög að því hvernig standa eigi að þessari skráningu og kynni fyrstu skrefin í því sambandi á næsta stjórnarfundi. Nauðsynlegt er að skoða vel stöðu reyndra reiðkennara með áralangan kennsluferil að baki en engin réttindi, hvernig þeir verða metnir og hvernig við tryggjum aðgang allra jafnt, ekki eingöngu FT félaga eða þá sem eru Hólaskólamenntaðir.


  1. Bréf frá Eiríki Jónssyni

Eiríkur hefur skráð hestamyndasafn sitt sem spannar árin 1979 til 2006 og býður LH að kaupa safnið. Ákveðið að fá Eirík á fund til að kynna safnið og jafnvel að fá Kára Arnórsson með á þann fund. Eitt af verksviðum LH er að varðveita söguna og höfum við fengið Kára til að ská sögu LH. Þessi verkefni gætu því tengst og rétt að skoða hvort þau gætu átt samleið.


  1. Átaksverkefni um aðbúnað hrossa og hesthús – Landbúnaðarháskóli Íslands (Lbhí)

Átaksverkefnið var kynnt fyrr í vetur og óskaði Lbhíeftir stuðningi frá LH við verkefnið. Var mannvirkjanefnd LH sett í málið en ekkert hefur verið haft samband við nefndina eða hún kölluð á fund. Þorvaldi var sendur tölvupóstur þar sem óskað var eftir stöðu mála og honum sendar upplýsingar um mannvirkjanefnd LH. Nauðsynlegt að fylgja málinu eftir.


  1. Öryggisstaðlar fyrir hesthúsabyggingar

Haraldur og Gunnar Sturluson hafa fundað með ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytis og Sambandi íslenskra sveitarfélaga um nauðsyn þess að endurskoða þær reglur sem byggt er á við hönnun og skipulagningu hesthúsahverfa. Í framhaldi af þeim fundum óskaði LH eftir því við ráðuneytið að skipuð verði nefnd með fulltrúum hagsmunaaðila til að fara yfir staðla og reglur um þessi mál og koma með tillögur um úrbætur.


  1. Menntamál, niðurstöður menntaráðstefnunnar og næstu skref

Þátttakendur á ráðstefnunni í febrúar voru sammála um að upplýsingar sem þar komu fram væru mjög gagnlegar og gæfu mönnum yfirsýn og innsýn í stöðu mála í dag.

Tillaga LH til menntamálaráðuneytis er að þessir tveir aðilarhaldi árlegan fund eða ráðstefnu sem þessa, því margt er að gerast í menntamálum hestamanna og fjölmargar breytingar í vændum. Þetta væru m.a. upplýsingafundir, þar sem allir þeir ólíku hópar sem koma að menntamálum hestamanna hittast og fara yfir stöðuna hjá sér og hvað sé framundan.

Markmið í menntamálum verða að vera þau sömu, þó að farnar séu mismunandi leiðir til þess að ná þeim. Því hlýtur megin markið rástefna/funda sem þessara að skoða hvert við stefnum og hver sé þróunin og námsmarkmiðin.

Þessir punktar hafa verið sendir menntamálaráðuneytinu.


  1. Landsmót hestamanna 2010

Skrifað var undir samning við Gullhyl um að halda Landsmót 2010 að Vindheimamelum. Stærsta breyting frá fyrri samningum er að aðilar samningsins vinna sameiginlega að því að tryggja fjármagn frá ríki og sveitarfélagi til að koma landsmótssvæðinu í það form sem samningurinn kveður á um. Fundað hefur verið með fjármálaráðherra um málið og er honum umhugað um að klára það og sendir boltann áfram til landbúnaðarráðherra, ráðherra hestamanna. Fyrirhugaður er fundur með Einari sem allra fyrst.


  1. Bréf frá hestamannafélaginu Létti

Ásta formaður Léttis sendi LH gögn um stöðu reiðhallarmála á Akureyri - stutta skýrslu um stöðu og fjárþörf, einnig nokkrar myndir, teikningu og kostnaðaryfirlit. Mismikilvægir þættir í byggingu reiðhallarinnar eru eftir en til þess að geta hafið rekstur í húsinu þarf að minnsta kosti að klára áhorfendasvæði og gerði umhverfis reiðsvæði, anddyri, salerni og hesthús. Léttir er í raun stopp með allar framkvæmdir og er félagið þegar búið að skuldsetja sig nokkuð.

Ljóst er að mörg félög eru í sömu aðstöðu og Léttir og spurningin er hvernig LH geti aðstoðað hestamannafélögin með að finna lausnir, viðbótarfjármagn og rekstrarform á reiðhallirnar. Augljósasta leiðin er að reiðhallir falli undir íþróttamannvirki sveitarfélaganna og gæti LH m.a. komið að því að móta stefnu og skilgreinungu á því. Stjórn LH hefur verið sent bréfið frá Ástu til kynningar.


  1. Starfsreglur varðandi dómara með alþjóðaréttindi

Samkvæmt svari við fyrirspurn til stjórnar FEIF kemur fram að dómarar með alþjóðaréttindi eru löglegir á öllum WR mótum á Íslandi. Ágreiningur hefur komið upp varðandi þetta mál, þegar að dómari með gild alþjóðaréttindi dæmir á WR móti á Íslandi en hefur ekki mætt á upprifjunarnámskeið hér á landi. Einari, Sigurði Ævars, Haraldi og Vilhjálmi falið að funda með stjórn og fræðslunefnd íþróttadómarafélagsins til að fá niðurstöðu í málið.


  1. Dómaranefnd LH, ný reglugerð

Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar mætir á fundinn. Ljóst er að margt í vinnureglum dómaranefndar er ekki virkt og annað óljóst og skarast á við starfssvið dómarafélaganna. Var endurskoðun á reglugerðinni mun meiri vinna en búist var við og óskar nefndin eftir því að fá lengri tíma til að vinna heildar reglugerð sem nýtist í framtíðinni. Leggja síðan nýja reglugerð fyrir landsþingið næsta vetur.

Margt þarf að huga að s.s. að verklagsreglur fyrir eftirlitsdómara þurfa að vera skýrari, endurskoða þarf endurmenntun – upprifjunarnámskeið dómara og tímasetningar þeirra, úthlutun dómara á mót er ekki í góðum farvegi, starfsumhverfi dómara, stærri mót (tímamörk) og margt fleira. Einnig samþykktu bæði dómarafélögin á aðalfundum sínum í vetur að sameina dómarafélögin í eitt félag. Það mun einnig hafa áhrif á starfssvið dómaranefndar.

Stjórn LH lýsir fullum stuðningi við áframhaldandi vinnu dómaranefndarinnar, bæði varðandi starfsreglur og tillögur að reglubreytingum fyrir næsta landsþing LH.

Ákveðið að Haraldur hafi samband við dómarafélöginn og heyri um stöðuna á sameinungu þessara félaga.

Þó nokkrar umræður urðu um eftirlitsdómara og að eftirfylgni á skýrslum eftir mót með eftirlitsdómara vanti. Það þarf að kynna skýrslurnar fyrir fræðslunefndum dómarafélaganna og stjórn LH og hvernig unnið er með athugasemdir í skýrslunum svo læra megi af þeim. Einnig þarf að skoða fjármögnun eftirlitsdómara. Sigurður Ævars leggur til að fræðslunefndum félaganna væri falið að skipa eftirlitsdómara og fengju þær til þess féstyrk frá LH.


  1. Starfsmannamál LH

Stjórn LH hefur borist bréf frá Sólveigu Ásgeirsdóttir þar sem hún segir upp störfum frá og með 30. apríl. Óskar hún einnig eftir að vinna ekki allan uppsagnarfrestinn heldur miða starfslok við LM 2008 eða í kringum 6. júlí.

Stjórn LH vill þakka Sólveigu Ásgeirsdóttir góð störf í gegnum árin.

Í ljósi stöðu á skrifstofu og þeirra hugmynda sem hafa verið í gangi um endurskipulagningu á starfsemi LH hefur verið rætt við Bjarna S. Jónsson ráðgjafa, en hann hefur komið að skoðun á starfsemi LH áður. Samþykkti hann að koma að þessum málum og endurskoða alla starfsemi LH með það að leiðarljósi að nýta vel þá viðburði sem LH hefur yfir að ráða til hagsbóta fyrir félagsmenn sína.


  1. Öryggismál

Gunnar Sturluson formaður öryggisnefndar LH mætir á fundinn og kynnir það sem gerst hefur síðan haldin var öryggisráðstefna á Akureyri í febrúar s.l. VÍS hefur gefið út bæklinginn „Öryggi í hestamennsku“ í samvinnu við LH. Þessi bæklingur mætti dreifast víðar en þó er áhugi á honum að aukast, smbr. fyrirspurnir á skrifstofu LH. Umræða um öryggismál hefur verið virk í bæði sjónvarpi, útvarpi og blaðinu LHhestar.

Næstu skref eru að koma efni um öryggismál á vefinn og í framhaldinu vinna efni í stærri útgáfu. Haraldur kynnti að hann ræddi við formann Harðar um „Litlu hestabókina“ sem gefin var út fyrir nokkrum árum og að kannski væri hægt að styðjast við efni úr henni fyrir vefútgáfu. Næsti fundur öryggisnefndar er á mánudaginn kemur.

Lýstu fundarmenn ánægju sinni á samstarfi Fáks og tryggingafélagsins Sjóvá um öryggisvesti fyrir börn og kannski væri hægt að kynna þau betur fyrir almennum hestamönnum. T.d. kom fram hugmynd um að vera með kynningu á vestunum á Hestatorgi á Landsmóti í sumar í samvinnu við verslanir sem selja þessi vesti. Ráðgert er að halda öryggisráðstefnu fyrir suður- og vesturland í samvinnu við hestamannafélagið Gust. Ljóst er að mikið er um að vera hjá hestamönnum á þessum tíma en miðvikudagskvöld væri góður kostur – í kring um mánaðarmótin. Áhersla ráðstefnunnar yrði hjálmanotkun en henni fer aftur og þarf að hnykkja reglulega á þessu einfaldasta öryggistæki hestamanna. Fyrir 10 árum útbjó LH veggspjald um hjálmanotkun, Sigrún Ögm skoði það og kannski væri hugmynd að endurvekja það í einhverri mynd („þeir verja vitið sem hafa það“ er t.d. gott lógó) Einnig þarf að skoða verðmyndun á hjálmum en þeir eru flestir orðnir mjög dýrir – Sigrún Valdimarsdóttir skoði það mál.

Ósk kom frá stjórn LH að hafa kynningu um öryggismál á Landsmóti fyrir knapa á knapafundi, u.þ.b. 5 mínútna erindi á sunnudeginum fyrir landsmót en fundurinn er fyrirhugaður klukkan 18:00. Sigurður Ævars sendi öryggisnefnd erindi um málið.


  1. Önnur mál

  1. Styrkumsókn frá GDLH. Ekki hef ennþá borist kostnaðaráætlun frá fræðslunefnd GDLH þrátt fyrir ítrekaða ósk um það. Stjórn LH hefur tekið jákvætt í umsókn þeirra um styrk til gerðar kennsluefnis en getur ekki tekið endanlega ákvörðun nema að fyrir liggi kostnaðaráætlun.

  2. Varðandi málefni hestamanna í Ólafsfirði. Samþykkt að senda bæjarstjórn Fjallabyggðar bréf og spyrjast fyrir um framvindu mála þar. Sigfús komi með tillögu að bréfi.


Sigrún Ögmundsdóttir ritaði fundargerð

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d1054.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf