Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

18. fundur 22.04.08

Stjórnarfundur LH 22. apríl 2008

18. fundur



Stjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mætt voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigfús Helgason, Einar Ragnarsson, Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Þorvarður Helgason og Eyþór Gíslason, einnig sat fundinn Sigrún Ögmundsdóttir


  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar

Farið yfir fundargerðir síðasta fundar. Bóka við lið þrjú að stjórn LH lýsir yfir ánægju með fram komin göng og þakkar Halldóri og Sæmundi frábær störf.

Fram kom að fulltrúar úr fyrri kjörnefnd 2006 samþykkja að sitja áfram í ár.

Liður 7, samþykkt að óska þess við ÍSÍ að fulltrúar mæti á fund með stjórn LH vegna styrkjamöguleika.

Liður d í önnur mál – Óska eftir því að æskulýðsnefnd fjalli um málið og komi með hugmyndir um framtíðarskipan þessara mála.

Liður f í önnur mál – athuga með viðbótarbókun.


  1. Úthlutun reiðvegafjár 2008

Halldór Halldórsson mætir á fundinn með niðurstöður samgöngunefndar LH. Alls bárust umsóknir að upphæð kr. 290 milljónir en til úthlutunar eru 52 milljónir, mótframlög eru 55 milljónir. Viðhaldsfé hjá Vegagerðinni kr. 5 milljónir er nýr þáttur í reiðvegafé. Ómetið er sjálfboðavinna hestamanna og einnig einhver hluti mótframlaga sveitarfélaganna.

Í framhaldi af úthlutun urðu umræður um skrif mótorhjólamanna vegna hjólastíganets um allt land. Fjallað um bréf með athugasemdum LH varðandi málið. Niðurstaðan úr þeirri umræðu að óska eftir því við hestamennafélögin innan LH að þau safni upplýsingum um slys tengd mótorhjólum og komi þeim til LH þannig að unnt sé að halda utan um þessi gögn á einum stað. Stjórnin lýsir mikilli ánægju með góð og fagleg vinnubrögð samgöngunefndar og þann einhug sem virðist ríkja í nefndinni.

 

  1. Bréf frá umboðsmanni alþingis

Fram kemur í bréfinu að erindið er móttekið og fer í eðlilega umfjöllun innan embættisins.


  1. FEIF – kynning og umræður

Jón Albert Sigurbjörnsson mætir á fundinn til þess að kynna starfsemi FEIF og fyrir hvað samtökin standa og hvernig málum er þar háttað. Fer yfir tölfræðilegar upplýsingar um samtökin, fastanefndir og starfsnefndir. Fram kemur í máli Jóns að gríðarlegur kostnaður er vegna fundarhalda og nefndarfunda sem eru samtökunum erfið.

Í kynningu á menntastefnu FEIF kemur fram hjá Haraldi að FT óski eftir því að koma að því starfi með LH.

Umræður eftir kynninguna – hefur Ísland tvöfalda aðild eða deila þeir aðild með BÍ?. Ekki kemur fram skýr túlkun í lögum og stofnsamningi FEIF. Þetta þarf að skoða nánar.

Jóni Alberti þakkað fyrir að mæta á fundinn.




  1. Önnur mál.

  1. Landsmót 2010

Frestur til samninga um landsmót 2010 við Skagfirðinga rann út í dag án þess að samningar hafi tekist. Vilhjálmur sagði frá því að ekki hafi orðið af samningafundi vegna LM 2010 sem var boðaður kl. 11:00 í morgun þar sem fulltrúi Skagfirðinga og fulltrúi LM mættu ekki og boðuðu ekki forföll. Vilhjálmur lýsti yfir áhyggjum vegna áhugaleysis Skagfirðinga og væntinga Gullhyls ehf. um að nota LM 2010 til að fjármagna framtíðar-uppbyggingu á Vindheimamelum umfram það sem þarf til að uppfylla kröfur LM vegna mótssvæðis fyrir mótið 2010.

Bókun vegna málsins: Stjórn LH framlengir umboð nefndarinnar um eina viku. Verði ekki niðurstaða í málinu rennur umboð nefndarinnar út 2. maí. Málefni LM 2010 verða þá tekin upp að nýju innan stjórnar LH.

Sigfús Helgason mótmælir málsmeðferðinni og leggur til að öllum viðræðum við Skagfirðinga verði slitið nú þegar.


  1. Mótaraðanefnd

Bergur Hallgrímsson hefur tekið að sér formennsku í nefndinni.


  1. Skjalameðferð LH

Oddur tekur að sér að athuga með bætta skjalameðferð og vörslu á skrifstofu LH.


  1. Uppákoma hjá hestamannafélaginu Herði

Stjórn LH vill að bókun varðandi árlega uppákomu Harðarmanna verði birt á heimasíðu LH og send til fjölmiðla.


Næsti stjórnarfundur ákveðinn 9. maí. – frestað til 16. Maí.

Einar Ragnarsson, fundarritari

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Lyfjareglur
joiskul3.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf