Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

17. fundur 27.03.08

Stjórnarfundur LH 28. mars 2008

17. fundur



Stjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mætt voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigfús Helgason, Einar Ragnarsson, Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Maríanna Gunnarsdóttir, Þorvarður Helgason og Eyþór Gíslason.


  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar

Farið yfir fundargerðir síðasta fundar. Bókun við lið 3 leiðrétt. Sigfús vill að farið verði í viðræður við eyfirðinga til þess að vita hvað þeir hafa fram að færa.

Fundargerð samþykkt með þessum breytingum.


  1. FEIF, WorldFengur, MótaFengur og Kappi

Oddur greinir frá stöðu tölvumála og viðrast þau í góðum farvegi.

WorldFengur – BÍ vill taka upp viðræður við FEIF um aðgengi félaga að WF. LH mun fylgja FEIF að málum.

FEIF nefnd um endurskoðum á lögum FEIF – Gunnar Sturluson tilnefndur að hálfu LH. Vilhjálmur, Sigurður og Maríanna sem vinnuhópur með Gunnari.

Stjórn LH ásamt fulltrúum Íslands hjá FEIF komi saman og ræði verkferla LH gagnvart FEIF.

 

  1. Skráning og flokkun reiðvega

Halldór Halldórsson og Sæmundur Eiríksson kynna og sýna. Stjórn LH samþykkir að kaupa tölvu fyrir framhald verkefnisins.Stjórn LH lýsir yfir ánægju með fram komin göng og þakkar Halldóri og Sæmundi frábær störf.

LH fær til úthlutunar 52 milljónir af reiðvegafé 2008. Halldór bendir á að of mikið af reiðvegafé liggi ónotað.


  1. Greinargerð um lögmæti álagningar fasteignaskatts af hesthúsum

Málið er í vinnslu undir stjórn Arnórs Halldórssonar. Hugsanlegt er að nauðsynlegt sé að fara í mál vegna þessa. Svo virðist sem reglugerðir stangast á við lög.


  1. Staða vinnuhópa af formannafundi

Málinu frestað til næsta fundar.


  1. Kjörnefnd fyrir landsþing LH

Rætt verði við sömu aðila og fyrir síðasta þing.

 

  1. Ríkisstyrkir til sérsambanda innan ÍSÍ

Nauðsynlegt að fá fulltrúa ÍSÍ á fund vegna mögulegra styrkja innan kerfisins. Óska þess við ÍSÍ að fulltrúar mæti á fund með stjórn LH vegna styrkjamöguleika. Senda bréf og þakka veittan styrk.

 

  1. Önnur mál.

 

  1. Youth CUP 2008

Umsókn um styrk til þátttöku á Youth CUP í Sviss vegna fararstjóra og liðstjóra. Stjórn LH lýsir fullum stuðningi við umsóknina.


  1. Spurningalisti

Spurningalisti varðandi fjölmiðla – Þorri tekur að sér að vinna svörin með skrifstofu.


  1. Bréf frá samninganefnd um Miðhálendi Íslands

Bréfi vísað til reiðveganefndar.


  1. Styrkumsókn frá Æskan og hesturinn

Umræður um styrkumsókn frá æskan og hesturinn á Sauðárkróki. Stjórn lýsir sig jákvæða til umsóknar og felur gjaldkera að ganga frá málinu. Óska eftir því að æskulýðsnefnd fjalli um málið og komi með hugmyndir um framtíðarskipan þessara mála.


  1. Fundur með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Fundur með Einari K. Guðfinnssyni vegna Landsmóts hefur verið frestað. Verður tekið fyrir á næsta fundi.


  1. Uppsagnarbréf frá Sigrúnu Ögmundsdóttir

Sigrún segir upp starfi sínu hjá LH með löglegum fyrirvara. Nauðsynlegt er að skoða með nýjan starfskraft.

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
img_3198.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf