Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

16. fundur 16.03.08

Stjórnarfundur LH 14. mars 2008

16. fundur



Stjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mætt voru: Haraldur Þórarinsson, Sigfús Helgason, Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Maríanna Gunnarsdóttir, Sigrún Valdimarsdóttir, Hinrik Már Jónsson og Þorvarður Helgason.


  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar

Farið yfir fundargerðir síðastu tveggja funda og þær samþykktar samhljóða.


  1. Skógarhólar.

Einar Sæmundsson kom og kynnti okkur hugmyndir Þjóðgarðanefndar/Þingvallanefndar. Stjórninni leist vel á þær hugmyndir og ákvað að fara í viðræður við Þingvallanefnd um rekstur og framtíð Skógarhóla. Haraldur og Maríanna fara í þær viðræður.

 

  1. Landsmót 2010 - staða

Beðið er eftir fundi við ráðherra og verður því að gefa því lengri frest eða fram að næsta fundi. Sigfús vill bóka: “Vill að teknar verði upp viðræður við Eyfirðinga.”


  1. Mannvirkjamál – hesthús, bréf Lbhi.

Mannvirkjamálin eru í góðum farvegi.


  1. WorldFengur - staða.

Haraldur fór á kynningarfund hjá WorldFeng. Nýjasta útgáfan af Kappa er komin út og er hún í prófun.


  1. Hestatorg.

Oddur heldur áfram samstarfi við Hestatorg.

 

  1. Hestamannafélagið Adam, umsókn. (Laganefnd ÍSÍ hefur samþykkt fyrir sitt leyti lög Adams og eru þeir nú löglegir innan íþróttahreyfingarinnar.).

LHsamþykkir umsókn Hestamannafélagsins Adams og biður þá velkomna í LH. Mun LH senda þeim lög LH.

 

  1. Landsþing LH, 24. og 25. okt. 2008 - kjörnefnd.

Samþykkt að landsþingið verði haldið helgina 24.- 25. okt. 2008. Leggja fram tillögu á næsta fundi um kjörnefnd.

 

  1. Fundur á Hvanneyri (fasteignagjöld o.fl.).

Þorvaldur í Andvara kom og skýrði stöðu mála varðandi fasteignagjöld sem sett hafa verið á hesthús á svæði Andvara. Síðar kom Arnór Halldórsson lögfræðingur Andvara og skýrði stöðu mála. En hún er sú að þetta fari fyrir Alþingi. Og fyrir það þyrfti að vera búið að funda um málið við Þorgerði Katrínu og Einar K. Guðfinnsson ráðherra, sem fyrst. Þorvaldur spurði hvort hann mætti tilkynna sínum félagsmönnum það að LH væri búið að taka við þessu máli og var það samþykkt.

 

  1. Útgáfumál (Lhhestar)

Lhhestar í samstarfi við LM. 

 

  1. Önnur mál.

 

a. FEIF.

Á næsta fundi skal skipað í nefnd sem fer yfir lög FEIF og eins líka ferilinn á breytingartillögum frá FEIF. Á næsta stjórnarfundi verður skipuð nefnd sem er bakland Gunnars Sturlusonar í laganefnd FEIF.
Bréf frá Ágústi Hafsteinssyni og Sigurði Ævarssyni vísað til framkvæmdastjórnar fyrir næsta fund.
Oddur setur upp verklagsreglur og sendir á stjórn eftir páska


b) gott mál að þýðingar séu í vinnslu


d) landsliðsnefnd ætlar að ganga til samninga við Einar Öder Magnússon sem þjálfara á Norðurlandamóti


e) alþjóðadómararáðstefnan: meginframkvæmd komin á hreint. Tæknilega séð í góðum farvegi. Endanleg kostnaðaráætlun klár á næsta stjórnarfundi.


f) fá gögn send í tölvupósti fyrir fundi, samþykkt að kaupa nýjan skanna á skrifstofu.


g) Youth Cup beiðni um styrk vegna fylgdarmanna. Kostnaðaráætlun á næsta fundi


Næsti fundur 28.03.08 klukkan 15:00


Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d8817.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf