Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

15. fundur 29.02.08

Stjórnarfundur LH 29. febrúar 2008

14. fundur. Haldinn á Akureyri.


Aðalstjórnog varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Oddur Hafsteinsson, Sigurður Ævarsson, Sigfús Helgason, Hinrik Már Jónsson og Þorvarður Helgason. Einnig mættu á fundinn Ásta Ásmundsdóttir formaður Léttis, Halldór Halldórsson formaður samgöngunefndar LH og Gunnar Sturluson formaður öryggisnefndar LH.


  1. Fundargerðir síðasta stjórnarfundar

Frestað


  1. Skipulagsmál

Ásta Ásmundsdóttir fór yfir ferli Léttismanna gagnvart Akureyrarbæ varðandi skipulagsmál á Glerárdal.


3. Reiðvegmál.

Halldór formaður samgöngunefndar fór yfir helstu atriði hjá nefndinni:

  1. Hverjum ber að sjá um veghald á reiðvegum – þarf að skoða betur

  2. Setja lög til varnar reiðvegum


4. Öryggismál

Gunnar Sturluson ræddi öryggismál og kom inn á:

  1. Athuga tryggingamál hestamanna

  2. Huga að rannsóknarnefnd hestaslysa

  3. Námskeið fyrir fullorðna byrjendur


5. Landsmót 2010

Stjórn Funa mætti til fundar og kynnti Melgerðismela fyrir stjórn. Nokkur umræða varð um þá ákvörðun stjórnar LH að hefja viðræðum við Vindheimamela fyrir Landsmót 2010. Lýsti stjórn Funa því yfir að þeir væru ósáttir við þá ákvörðun og óskuðu eftir því að stjórn LH endurskoðaði ákvörðun sína og hefji viðræður um að næsta mót, þ.e. Landsmót 2010 verði haldið á Melgerðismelum


Fundi slitið og haldið á Öryggisráðstefnu í Brekkuskóla.

Fleira ekki fært til bókar

Fundarritari:Haraldur Þórarinsson

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d0466.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf