Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

13. fundur og 14.fundur 01.02.08

Stjórnarfundur LH 1. febrúar 2008

13. fundur. Haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.


Aðalstjórnog varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Einar Ragnarsson, Maríanna Gunnarsdóttir, Oddur Hafsteinsson, Sigurður Ævarsson og Sigrún Valdimarsdóttir. Einnig var mætt Regína Gunnarsdóttir frá skrifstofu LH.


  1. Fundargerðir síðustu 2ja stjórnarfunda

Fundargerðir samþykktar.


  1. Skipun samninganefndar vegna viðræðna við Gullhyl ehf

Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason og Lárus Dagur Pálsson.


3. Erindi stjórnar hestamannafélagsins Funa til stjórnar LH um Landsmótið.

Frestað.


4. Starfsmannamál á skrifstofu LH

Maríanna fer yfir launamál og viðmiðun um launaútreikning, dagpeningagreiðslur ofl. Málinu verður framhaldið af gjaldkera og framkvæmdastjórn. Stjórn telur ekki tímabært að gera breytingar á launakjörum starfsmanna að svo stöddu. Ákvörðun verður endurskoðuð eftir að reynsla er komin á notkun verkefnaskýrslna.


5. Fundur á Akureyri 8. feb um Öryggis- og skipulagsmál

Næsti fundur stjórnar í tengslum við ráðstefnuna á Akureyri. Stjórnarmenn verða að tilkynna þátttöku fyrir miðvikudag.


6. Fyrirhugað er að fá formenn mannvirkja- og reiðveganefndar á fundinn – staða mála

Frestað.


7. Menntastefna menntamálaráðuneytisins og LH – 1. feb.

Haraldur fer yfir undirbúning og fyrirkomulag menntaráðstefnu menntamálaráðuneytisins og LH.


8. Umsókn gæðingadómarafélagsins um styrk frá LH við gerð kennsluefnis.

Samþykkt að skipa fulltrúa stjórnar LH Odd Hafsteinsson og Sigrúnu Valdimarsdóttur til viðræðna við formenn dómarafélaganna um hvort mögulegt sé að félögin samnýti krafta, gögn og fjármang til hagsbóta fyrir alla aðila.


  

  1. Fjármálanefnd.

Frestað.



  1. Önnur mál

  1. Bréf Gusts varðandi bækling Hestamennska á Íslandi. Haraldur og Einar skoða málið með Bjarnleifi.

  2. Erindi frá frá Landgræðslu ríkisins. Haraldur skoðar málið.

  3. Einar og Sigurður Ævarsson koma með hugmynd fyrir næsta stjórnarfund varðandi velferðarmálefni.

  4. Fjármagn frá opinberum áðilum. Breytingar á döfinni frá ríkisvaldinu.

  5. Sigurður Ævarsson – Tekur að sér að stjórna hóp vegna mótaraðar LH.

  6. Samþykkt að veita styrk í formi flugmiða til styrktar Breska Íslandshestasambandinu vegna Ísmóts.

Fleira ekki fært til bókar

Fundarritari: Einar Ragnarsson

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d1339.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf