Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

12. fundur 07.12.207

Stjórnarfundur LH 07. desember 2007

12. fundur. Haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.


Aðalstjórnog varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Einar Ragnarsson, Oddur Hafsteinsson, Hinrik Már Jónsson, Sigurður Ævarsson og Sigfús Helgason. Einnig var mætt Regína Gunnarsdóttir frá skrifstofu LH.


  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar

Fundargerðsíðasta fundar yfirfarin og fram kemur að misskilnings gætir um mannskap í sambandi við mótaröð LH en meiningin var að Einar Ragnarsson og Sigurður Ævarsson störfuðu með nefndinni.

Menntaráðstefnan er dagsett 11. janúar 2008, menntamálaráðuneytið kemur að málinu með LH. 

Hátíðarundirbúningur – málið í þeim farvegi sem ákveðið var á síðasta fundi. 

Bæta þarf inn í fundargerðina athugasemdum um fundi með nefndarformanni.

Fundargerð samþykkt.


  1. WorldFengur, Jón Baldur Lorange mætir á fundinn

Jón B. Lorange mætir á fundinn og fer yfir samninga við FEIF og með hvaða hætti hægt væri að opna WorldFeng fyrir öllum félagsmönnum í hestamannafélögunum um allan heim.

BÍ vildi halda Íslandi utan við þetta kerfi þar sem tvö samtök eru hér en ekki annars staðar. FEIF leggur hins vegar áherslu á að eitt gangi yfir alla. Stjórnin telur nauðsynlegt að funda sérstaklega um þetta mál áður en ákvörðun verður tekin.

Jón Baldur fer stuttlega yfir sögu Kappa og hvernig gengið hefur. Telur nauðsynlegt að skipa sérstaka stjórn til þess að fylgja málinu betur eftir.


3. Úrvinnsla frá formannafundi og síðasta stjórnarfundi – staða mála

Tölvupóstur til stjórnarmanna um stöðu mála.


4. Bréf frá Félagi hrossabænda

Bréf frá Félagi hrossabænda varðandi fimmgangskeppnina (fskj. 1). Stjórn lýsir yfir áhyggjum vegna málsins og erþað á dagskrá keppnisnefndar sem lýsir ánægju með viðbrögð Félags hrossabænda. Samþykkt að senda dómarafélögunum málið til umsagnar.


5. Landsmót hestamanna 2010

Bréf frá Gullhyl rekstrafélagi Vindheimamela – staðfesting á umsókn um Landsmót 2010.

Þar sem bókun í síðustu fundargerð var ekki framfylgt verður að fresta ákvörðun um viku.


6. Hlutafjáraukning í Landsmóti hestamanna ehf. Bréf frá stjórn LM.

Sjá fyrri stjórnarsamþykkt (fskj. 3).


7. Aðalfundur FT, 8. desember, boð á fundinn

Einar Ragnarsson mætir fyrir hönd LH.


8. Af formannafundi ÍSÍ – Haraldur kynnir

Frestað.

  








9. Önnur mál

  1. Skógarhólar – Framkvæmdastjórn afgreiðir málið.

  2. Fundur með menntamálaráðherra og landbúnaðarráðherra

  3. Kynning á hestaíþróttafólki ársins til ÍSÍ og kynning til Samtaka íþróttafréttamanna – Skrifstofa skoðar málið með Maríönnu.

  4. Tölvupóstur frá Sólveigu Ásgeirsdóttur tekin fyrir og samþykkt að fela framkvæmdastjórn að skoða málið og leggja fyrir stjórn.





Fleira ekki fært til bókar

Fundarritari: Einar Ragnarsson

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Lyfjareglur
2m6d8326.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf